Útskriftarárgangur 2001
14.06.2006 15:01:50 / ma2001

Myndir!!

Enginn sem vill setja myndaslóðir hérna inn??

kv.Valla


» 11 hafa sagt sína skoðun

09.06.2006 09:38:34 / ma2001

Minnum á miðasölu

Kæru MA stúdentar!

Viljum leyfa okkur að minna á miðasölu vegna MA hátíðar og biðjum ykkur tengiliði um að áframsenda til ykkar fólks.

Til og með mánudeginum 12/6 er hægt að fá pantaða og greidda miða senda heim.
Hægt er að panta miða til og með 14/6 og þarf þá að sækja þá í "Höllina" 15. eða 16/6 milli kl. 13 og 17.
Þá verður einnig hægt að kaupa miða án pöntunar ef húsrúm leyfir.

Það er útlit fyrir frábæra þátttöku og má sem dæmi nefna að yfir 100 þátttakenda er að vænta úr liði 40 ára stúdenta!

Minnum á heimasíðuna www.ma81.com.

Fyrir hönd undinrbúningsnefndar 25 ára stúdenta, Alma D. Möller.


» 19 hafa sagt sína skoðun

07.06.2006 14:46:55 / ma2001

EIN VIKA í stóru stundina!

(Það er Ilmur sem talar ..... )

Er ekki kominn stemmning í mannskapinn?!?!

Hvað er svo planið hjá ykkur 14. júní??

Minn bekkur (VX) ætlar að hittast - líklega í Ytri vík og rifja upp gamlar og góðar stundir. Hver veit nema við gluggum í gömul myndaalbúm, blöðrum um gamla kennaratakta og leysum svona eins og tvær, þrjár diffurjöfnur - okkur til fróðleiks og skemmtunar ;).. eða EKKI. :). Mér skilst allavega að það verði sötrað ósköpin öll af áfengi (enda von á drykkjuhrútum á borð við Balla og Nonna ;)) og mér finnst ekki ólíklegt að slegið verði saman í eitt stykki stóran bala af blárri bollu, svona til að kóróna gömlu góðu Ytri víkur vx-stemmninguna! heiti potturinn verður eflaust heimsóttur og leikurinn Never have I ever "spilaður", ásamt öðrum fyllerísleikjum. Ég læt þó hina um drykkjuna - ALDREI ÞESSU VANT -  þar sem ég er komin tæpa 5 mánuði á leið með fyrsta erfingjann! En ég treysti nú hinum bekkjarfélögunum alveg til að drekka minn skammt. Nú og ef þeir eru ekki að standa sig í drykkjunni mæti ég bara með trekkt á svæðið, dæli í mannskapinn og veiði síðan upp úr þeim allar kjaftasögurnar sem ég hef slysast til að missa af :).

Mætingin í okkar bekk er bara nokkuð góð. Mér skilst reyndar að Ingvar mæti ekki (ætli hann sé ekki einhversstaðar í Kína að spila hokkí eins og venjulega? :)) og svo verður Steinunn í útskriftarferð hjúkrunarnema (í Tælandi). Restin af liðinu (þ.e.a.s. ég, Hóa, Sigurbjörg, Ásrún, Hannes, Siggi, Fjölli, Óli, Balli, Nonni, Jón Orri og Helgi Steinar) mætum hinsvegar galvösk norður .. og ég segi nú bara eins og Bubbi kóngur sagði á tónleikunum sínum í gær: "þetta verður GEGGGGGJAÐ"!!

En hvað segið þið, hvað er planið hjá ykkur þann 14. júní? - og.. eru ekki allir komnir með þema fyrir óvissuferðina (þið munið að þið eigið að vera búin að borga hana).

Hlakka annars bara til að sjá ykkur öll sömul!!!!

Kveðja að vestan,

Ilmur Dögg


» 7 hafa sagt sína skoðun

30.05.2006 11:59:40 / ma2001

ÁMINNING

Minni fólk á eftirfarandi dagsetningar :lol:

6. júní - Borga óvissuferðina

10. júní - Miðasölu í höllina LÝKUR

Hægt verður að kaupa miða á dansleikinn við innganginn þann 16. júní.

Kveðja, Anna Guðný


» 11 hafa sagt sína skoðun

22.05.2006 15:33:48 / ma2001

"Sönnsjæn-múnlæt-gúddtæms-búggí"

Sæl verið þið öll,

nú er þetta komið á hreint. Það kostar 2.500 kr. á mann í ferðina þann 15. júní næst komandi.

Viljið þið vera svo væn að greiða 2.500 kr. inná reikning nr. 303-13-001440, kt. 190281-3029 og sendið kvittun í mail-i á mig (hannesa@kbbanki.is) svo ég geti haldið utan um það hver er búinn að greiða og hver ekki... ;) Viljið þið einig vera svo væn að greiða í síðastalagi þriðjudaginn 6. júní - athugið að þetta er síðasti séns. Ég trúi því og treysti að við séum orðin nógu þroskuð og minnug til að gera gengið frá þessu á réttum tíma.

Innifalið er:
- allar ferðir innan dagsins
- gríðarlega skemmtilegur tími
- kvöldverður
- rosalega mikið af gellum handa stráknum
- áfengi og gos
- nokkrar tylftir af myndarlegum gaurum handa súlkunum
- og að lokum, alveg hörku fjör í góðra vina hópi.

Það er mæting á planið hjá MA klukkan 14:00 þann 15. maí. Það sem þið þurfið með ykkur er ekki mikið. Klæðið ykkur eftir veðri og munið að við viljum helst að hver og einn bekkur sé með sitt einkenni (það er ykkar að áhveða hvað það er).

Þau ykkar sem hyggjast drekka ótæpilega og vera meira ölvuð en góðu hófi gegnir - gott framtak hjá ykkur, en takið þá með ykkur eina kippu til vara því við erum búin að áætla 'meðal' neyslu á haus ;)

Þau ykkar sem ekki drekkið ölið örvæntið ekki - við verðum með eitthvað annað líka. En gott væri að fá að vita hversu mörg þið eruð sem eruð svona sérvitur að drekka ekki ölið góða ;) (senda mér línu á hannesa@kbbanki.is - bara til að áætla fjöldann).

Eins og áður sagði þá endum við innan bæjarmarka Akureyrar og því er ekki þörf á neinum búnaði vegna gistingar. Við endum ferðina á skemmistað og þegar þið gangið þar inn er ferðinni lokið - þ.e.a.s. það verða tilboð á barnum en ekki gefins áfengi.

Með von um góðar stundir og skjóta greiðslu,

Kveðja H.


» 17 hafa sagt sína skoðun

09.05.2006 22:49:05 / ma2001

Minni á skráningu í ferðina þann 15. júní...

Sæl verið þið öll,

ég ætla ekki að skyggja neitt á bréfið frá 25 ára stúdentum sem er hér að neðan og er nauðsynleg lesning fyrir alla en vil þó minna fólk á að skrá sig í ferðina þann 15. júní. Núna í dag skráði sig eintaklingur númer fimmtíu í ferðina - sem er helvíti gott finnst mér. Við viljum þó fá ennþá fleiri - senda mail á hannesa@kbbanki.is með subjectinu "Skráning í ferðina flottu" og þið eruð komin í hópinn. Einfaldara getur það varla verið. Ef þið eruð svo töff að nota ekki e-mail þá getið þið hringt í mig (eða sent sms) í síma 856-7158...

Góðar stundir,
H.


» 5 hafa sagt sína skoðun

08.05.2006 12:45:11 / ma2001

16. júní!!!

Bréf frá undirbúningsnefnd 25 ára stúdenta 2006 til annarra afmælisárganga.

Kæri jubilant

Við óskum þér og samstúdentum þínum til hamingju með væntanlegt stúdentsafmæli í sumar. Undibúningsnefnd 25 ára stúdenta vill með þessu bréfi minna á MA hátíðina í Íþróttahöllinni á Akureyri þann 16.júní næstkomandi. Til afmælisárganga teljast þeir sem eiga eins, fimm, tíu, fimmtán, tuttugu, tuttugu og fimm, þrjátíu, fjörutíu, fimmtíu, sextíu og sjötíu ára stúdentsafmæli.

Við vonum að árgangur þinn taki virkan þátt í að hátíðin megi verða minnisstæð og skemmtileg og biðjum við þig um að að vera milliliður í að koma boðum áleiðis til samstúdenta þinna.

Hátíðin mun hefjast með fordrykk í anddyri Íþróttahallarinnar um kl.18:00 og síðan verður þríréttað glæsilegt borðhald. Á dagskrá verður söngur, skemmtiatriði og að venju munu eins árs stúdentar fá gólfið um miðnætti til að kasta hvítu kollunum.

Dansað verður til kl. 03:00 við undirleik hljómsveitarinnar “Í svörtum fötum” og á efri hæðinni verður hægt að dansa og syngja við undirleik “Sælusveitarinnar”.

Miðaverð á hátíðina hefur verið ákveðið 6.800 kr. fyrir aðra en 1.árs stúdenta. Miðverð til þeirra er 4.200 kr.

Ef aðeins er keyptur miði á dansleik kostar miðinn 2000 kr.

Matseðill hátíðarinnar ásamt dagskrá verður birt á heimasíðu okkar www.ma81.com

Í ár verður öll miðasala í forsölu, og hefst 6.maí. Þeir sem vilja greiða með kreditkorti senda tölvupóst á ma2006@internet.is  og gefa upp nafn, heimilisfang, útskriftarárgang, fjölda miða og síðan kreditkortanúmer og gildistíma.

Þeir sem vilja greiða með peningum eða í heimabanka gera það með því að senda greiðslu á 1175-26-101981, kt. 640206-0630. Athuga að nauðsynlegt er að láta senda kvittun á ofangreint netfang þar sem fram kemur nafn og heimilsfang þess sem greiðir ásamt tilkynningu um útskriftarárgang og fjölda miða. Miðarnir eru síðan sendir í pósti til viðkomandi.

Hefð hefur skapast fyrir því að afmælisárgangar komi með skemmtiatriði sem tekur 5-7 mínútur í flutningi. Við viljum kanna jarðveginn fyrir því og biðjum ykkur að vera í sambandi við veislunefndina með það (tengiliðir Birna Margrét Arnþórsdóttir eða Aðalsteinn Steinþórsson). Ekki er beðið um ræðu, þar sem hátíðarræða kvöldsins er í höndum 25 ára stúdenta.Við stingum uppá að atriðið á hátíðinni tengist tíðaranda eða tísku ykkar tíma í skólanum s.s með tónlist, gamanmálum eða leiknu atriði.

Ef þið viljið sjá einhverja ákveðna texta í sönghefti sem prentað verður til notkunar á hátíðinni þá vinsamlega hafið sambandi við veislunefnd f. 20.maí  Netföng nefndarmanna eru á heimasíðunni okkar; www.ma81.com

Með þessu bréfi viljum við biðja þig um að hvetja sem flesta úr þínum árgangi að koma á hátíðina.

Hlökkum til að sjá ykkur!        Undirbúningshópur 25 ára stúdenta.


















» 19 hafa sagt sína skoðun

24.04.2006 21:57:46 / ma2001

Það er bókstaflega allt að gerast...

Sæl verið þið öll nær, fjær og mitt á milli...

Jæja - þá er komið að því... Okkur langar að vita hverjir ætla að koma með í ferðina þann 15. júní. Þetta verður svona "semí" óvissuferð - við vitum að við sögðum síðast að við myndum láta ykkur kjósa á milli ferða, en við erum hætt við það ;) Við ætlum bara að leyfa okkur að skipuleggja þennan dag fyrir ykkur þannig að þið getið notið hans fram í fingurgóma og jafnvel vel rúmlega það... erum við ekki æði? 8)

Það sem þið þurfið að vita áður en þið segið já (eða nei - sem er nottlea bara rugl) er þetta:

- Mæting á planið hjá MA klukkan 1400 þann 15. júní 2006.

- Endum á þekktum skemmtistað (innan bæjarmarka Akureyrar) þar sem við ætlum að tjútta á kantinum fræga fram eftir kvöldi...

- Innifalið: Allar ferðir innan dagsins, kvöldmatur og helvíti-djöfullli-andskoti mikið magn af áfengi (gos fyrir ykkur sem ekki ætla að drekka neitt áfengt...)

- Verð: max 3.000 krónur.

Annað þurfið þið ekki að vita, við förum ekki út fyrir landssteinanan þannig að þið þurfið ekki vegabréf, ef það verður rigning þá þurfið þið regnföt annað ekki...

En til þess að koma því nú á hreynt sem allra fyrst hversu mörg við verðum í þessari ferð þurfum við að byðja ykkur um eitt, það er að tilkynna þátttöku með því að senda e-mail á þetta netfang: hannesa@kbbanki.is og hafið þið subjectið svona "Skráning í ferðina flottu" (nema sleppa gæsalöppunum auðvitað ;) hehe)

Fleira var það ekki í bili - eruð þið annars ekki í stöði með gvöði???

Kveðja Meistari Tryggvi og Steindór svindlari


» 23 hafa sagt sína skoðun

10.04.2006 13:40:23 / ma2001

Fyrsti fundur búinn

Sæl verið þið öll,

fallegasta nefnd sem sett hefur verið saman hélt sinn fyrsta fund síðastliðið föstudagskvöld og það sem við viljum koma á framfæri sem allra fyrst er þetta.

1. Þessir dagar í sumar verða ógleymanlegir...

2. Hver bekkur á (helst) að koma með skemmtiatriði þann 15. í sameiginlegan mat og drykk... Tilvalið að halda bekkjarpartý þann 14. og æfa atriðið upp ;)

3. Þessir dagar í sumar verða ógleymanlegir...

4. Við ætlum að setja saman nokkrar "dagsferðir" sem við leyfum ykkur svo að velja á milli og förum þá ferð þann 15. og endum í matnum og drykknum.

5. Þessir dagar í sumar verða ógleymanlegir...

6. Að morgni 16. júní (eða eftir hádegið réttarasagt) er ætlunin að við förum í heimsókn í MA og skoðum það sem breyst hefur, setjast í gömlu stólana okkar og njótum dagsins fram að miklu húllumhæi um kvöldið...

7. Þessir dagar í sumar verða ógleymanlegir... 8)

Hvernig hljómar þetta?

Kveðja Hesta-Jói


» 27 hafa sagt sína skoðun

06.04.2006 16:51:11 / ma2001

Laus sæti á Gettu betur

Það eru laus sæti á Gettu betur í kvöld. Það kom upp einhver leiðinda 
staða - margir sem höfðu skráð sig á keppnina mættu ekki í ferðina og 
þar af leiðandi eru laus einhver 30 - 50 sæti (sem er frekar fúlt 
fyrir þá MA-inga sem hættu við að fara suðurá einkabílum af því það 
var orðið fullt á keppnina).

Það er því um að gera að mæta í kvöld og fylla í auðu sætin. Mér 
skilst að það verði einhver MA-ingur í dyrunum til að taka á móti 
fólki. Annars getið þið líka prófað að hringja í Völlu (868-6651)


» 12 hafa sagt sína skoðun

04.04.2006 20:18:16 / ma2001

Úrslit í könnuninni!

Á ekki örugglega að júbílera?
að sjálfsögðu, allan pakkann! Margra daga partýýý
 68%


Jájájá en kemst bara 16. júní

17%

Veit ekki ennþá hvort ég kemst

7%

Nei, verð í útlöndum
6%
Neiiiiii ojjj nenni ekki

1%

Alls kusu 69 manns. Stefnir allt í rokna mætingu og rokna stemmningu.

Annars eru úrslit í Gettu betur á fimmtudagskvöldið klukkan 8, að Fiskislóð eins og síðast. Ég er að koma með krökkunum í rútu, held það séu slatti af liði að fara héðan að norðan, veit ekki nákvæma tölu. Sjálfsagt milli 3-400 manns. Væri rosalega gaman að sjá eitthvert ykkar á keppninni :o)

So long,
VallanTrallan


» 11 hafa sagt sína skoðun

30.03.2006 14:28:20 / ma2001

Áfram MA

Ég skora á alla gamla MA-inga sem staddir eru í Reykjavík að fjölmenna á Gettu betur í kvöld. Fregnir herma að klapplið MH-inga sé mun fjölmennara en MA-inganna og því er tilvalið að gamlir MA-ingar komi til hjálpar. Þetta er líka frábær leið til þess að hita upp fyrir 16. júní og koma sér í rétta gírinn.

Keppnin fer fram að Fiskislóð 45 og hefst klukkan 20. Til þess að fá sæti er best að mæta tímanlega.

MA - hot hot hot

Sumum finnst þetta kannski ferlega hallærislegt en við Kolbrún ætlum alla vega að mæta sem gamlir stjórnarliðar og sýna gott fordæmi. Aðrir gamlir stjórnarliðar munu einnig mæta, t.d. Steina Vala ;). Það yrði djöfulli skemmtilegt ef við myndum koma með góðan hóp.

Ef þið nennið ekki að mæta þá er alla vega skylda að horfa á þetta í sjónvarpinu í kvöld. Ef þið verðið heppin má sjá okkur Kolbrúnu bregða fyrir á skjánum með stafina M og A málaða á sitthvort brjóstið. Við ætlum að sitja í kjöltunni í Jói Má þannig að við ættum ekki að fara framhjá ykkur.

Koma svo...

» 11 hafa sagt sína skoðun

28.03.2006 11:25:18 / ma2001

Tíminn líður hratt...

Jæja gott fólk,

eins og sést á niðurtalningunni hér til hliðar nálgast stóra stundin óðfluga og því er ekki seinna vænna að nefndin fari að hefja störf. Það er ýmislegt sem þarf að huga að, eins og t.d. að panta rútur og svoleiðis.

Ég skora því á þá bekki sem enn þá eiga eftir að finna sér fulltrúa að fara að drífa í því og ef búið er að finna fulltrúa að þeir gefi sig fram!!!

Kveðja,

Anna Guðný :)


» 12 hafa sagt sína skoðun

18.03.2006 13:57:57 / ma2001

well o well..

Jæja, margir búnir að kommenta, en mér sýnist enn vanti ANSI MARGA uppá svo endilega verið dugleg að breiða út boðskapinn! :)

Heyriði, er það ekki rétt hjá mér að eftirtaldir eru komnir í nefnd: Hannes Árdal (VX), Fjóla/Hafdís (A), Anna Guðný (T) og Guðrún Jóna (B)

Restin af bekkjunum á því eftir að redda sér einhverjum í stuðið. Verður þetta ekki annars bara stuð þessi nefndarvinna?? Jújú auðvitað! - En ekki hvað?! Má ég stinga upp á fólki? Bara einhverju sem mér dettur í hug þegar ég lít yfir bekkjalistana... Þið segið þá bara nei ef þið viljið ekki......

Ég sting upp á: Benna (U), Völlu (FG - fínt að hafa einn núverandi MA-kennara í nefndinni, ekki satt?) og Jóni Eggerti (H)! Þá værum við allavega komin með svona fjölbreytta og skemmtilega stráka&stelpu nefnd, enga svona klíku- eða vinanefnd heldur bara 7 ólíka einstaklinga sem flestallir eru staðsettir í borginni svo það ætti ekki að vera mikið mál fyrir nefndina að hittast :). Hvað segið þið um þetta?

Mér skilst á Kristjönu (úr T-inu) að við eigum eftir einhvern smá pening frá því úr Carminusjóðnum sem eflaust kemur til með að nýtast vel, hvort sem er upp í gjöfina til skólans.

Hvernig er annars planið? Eru ekki oftast bekkjarpartý 14. júní, árgangapartý 15. júní og svo náttúrulega "the reunionið" þann 16. júní?

Jæja, ég læt þetta duga í bili, en hvað segið þið Benni, Valla og Jón Eggert, takið þið áskoruninni frá mér eða eru kannski einhverjir aðrir sem bjóða sig fram!? :)

Setti inn teljara hér til hliðar og eins og þið sjáið eru nú aðeins 90 dagar í herlegheitin!! :)

Luv.... Ilmsý Döggsý


» 12 hafa sagt sína skoðun

17.03.2006 14:14:41 / ma2001

44 hafa kosið

í könnuninni, jibbíí. Koma svo, fleiri fleiri áður en úrslit verða formlega birt.

Valla


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2